Söguganga

Njörður Sigurðsson mun leiða gesti hátíðarinnar í sögugöngu um Hveragerði.

Njörður Sigurðsson er sagnfræðingur sem hefur síðustu tvo áratugi staðið fyrir fjölmörgum söguferðum um Hveragerði og miðlað sögu bæjarins til íbúa og gesta. Auk þess hefur hann komið að uppsetningu fjölda söguskilta um bæinn í samstarfi við Hveragerðisbæ þar sem saga staðarins, byggðarþróun og menningararfur eru gerð sýnileg í bæjarlandinu.

Upphafsstaður: Lystigarðurinn.
Gangan verður á íslensku.

Ókeypis aðgangur.