D a g s k r á
26 . J Ú N Í
1 7 : 0 0 Hverafugl : Setning hátíðarinnar
Blómaborg
Á setningu hátíðarinnar kemur m.a. fram kórinn Hverafuglar.
1 9 : 3 0 CAPUT : Hróðmar og afleggjarar
Grunnskólinn í Hveragerði - Salur | Miðar: 3.000 - 4.500 kr. | Einnig er hægt að kaupa hátíðarpassa
Á tónleikunum flytur CAPUT verkið Stokkseyri eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson. Ljóð eru eftir Ísak Harðarson. Flytjendur eru CAPUT undir stjórn Guðna Franzsonar og Svanlaug Jóhannsdóttir, mezzosópran. Einnig munu hljóma verk eftir nemendur Hróðmars, þ.m.t. verk eftir Báru Gísladóttur, Gísla Magnússon, Herdísi Stefánsdóttur og Snorra Hallgrímsson en hann mun einnig leika með á píanó í sínu verki.
🎶 🎶 🎶
27 . J Ú N Í
1 1 : 0 0 Jónas Sig og Pétur Nói : Alþýðan & orgelið
Hveragerðiskirkja | Miðar: 3.000 - 4.500 kr. | Einnig er hægt að kaupa hátíðarpassa
Á tónleikunum mun hljóma tónlist alþýðuskálda frá Hveragerði í bland við íslensk orgelverk. Flytjendur eru Pétur Nói Stefánsson, Jónas Sigurðsson og Halldór Smárason.
1 3 : 3 0 Ljóðagjörningur
Þetta líður hjá (steinninn) | Ókeypis aðgangur
Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söngkona og Björg Brjánsdóttir flautuleikari flytja ljóðagjörning sem spunninn verður út frá ljóðum Elísabetar Jökulsdóttur.
1 5 : 0 0 Opnun á innsetningu
Bananahús Garðyrkjuskólans á Reykjum | Ókeypis aðgangur
Opið 27. júní: 15:00-20:00 & 28. júní: 10:00-20:00
Hljóðinnsetningin sem verður frumflutt á Hverafugli í Bananahúsi Garðyrkjuskólans er samstarfsverkefni Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur og Kristofers Rodríguez Svönusonar. Í verkinu rannsaka þau hljóðheima sem tengjast hinum ýmsu trjátegundum sem fyrirfinnast í Bananahúsinu; það er að segja, þau umhverfishljóð (bæði dýra og fugla) og þá tónlist sem á rætur sínar að rekja til svipaðra slóða í heiminum. Útkoman er einskonar endurómur og samansafn þeirra hljóða og tóna sem forfeður trjánna í Bananahúsinu lifðu í og hrærðust, líkt og minning eða draumur.
1 7 : 0 0 Söguganga
Hveragerði - Lystigarðurinn | Ókeypis aðgangur
Njörður Sigurðsson mun leiða gesti hátíðarinnar í sögugöngu um Hveragerði. Gangan verður á íslensku.
2 2 : 0 0. Heiða Árnadóttir : áttir
Hveragerðiskirkja | Miðar: 3.000 - 4.500 kr. | Einnig er hægt að kaupa hátíðarpassa
Heiða Árnadóttir söngkona flytur hljóðlistaverkið áttir eftir Lilju Maríu Ásmundsdóttur.
🎶 🎶 🎶
28 . J Ú N Í
1 4 : 0 0 Siggi í sundi
Sundlaugin Laugaskarði | Miðar: Sundmiði | Frítt í sund fyrir handhafa hátíðarpassa
Strokkvartettinn Siggi flytur verk sem innblásin eru af vatni, sundmenningu og hverum. Á dagskránni verða m.a. verk eftir Ellis Ludwig-Leone, Halldór Smárason og Unu Sveinbjarnardóttur.
1 7 : 0 0 KIMI Ensemble og nemendur LHÍ
Listasafn Árnesinga | Miðar: 3.000 - 4.500 kr. | Einnig er hægt að kaupa hátíðarpassa
KIMI Ensemble flytur ný verk eftir tónsmíðanemendur Listaháskóla Íslands ásamt sönglögum eftir Ingunni Bjarnadóttur.
2 0 : 0 0 Melchior
Leikfélag Hveragerðis | Miðar: 3.000 - 4.500 kr. | Einnig er hægt að kaupa hátíðarpassa
Eftir ferðalag um mismunandi stíla og listform bindur hin sögufræga kammerpopphljómsveit Melchior endahnút á hátíðina með miklum tónlistarbræðingi. Tónleikarnir kallast á við opnunartónleikana með Hvergerðinginn Hróðmar Inga Sigurbjörnsson í broddi fylkingar.
🎶 🎶 🎶