Siggi í sundi
Strokkvartettinn Siggi flytur verk af svölum Sundlaugarinnar Laugaskarði sunnudaginn 28. júní kl. 14:00.
Strokkvartettinn Siggi flytur verk sem innblásin eru af vatni, sundmenningu og hverum. Á dagskránni verða verk eftir Ellis Ludwig-Leone, Halldór Smárason og Unu Sveinbjarnardóttur.
Efnisskrá:
Halldór Smárason (1989): Flot (2026, frumflutningur)
Ellis Ludwig-Leone (1989): Free Dive (2023, útsett 2025)
Una Sveinbjarnardóttir (1975): Vatnasvíta (2026, frumflutningur)
Aðgangur: Sundmiði
Ókeypis aðgangur í sund fyrir handhafa hátíðarpassa
Strokkvartettinn Siggi
Strokkvartettinn Siggi var stofnaður árið 2012 í tengslum við UNM hátíðina, Ung Nordisk Musik. Kvartettinn hefur einbeitt sér að frumflutningi á nýrri tónlist auk hefðbundinnar efnisskrár og unnið að nýsköpun tónlistar í nánu samstarfi við samtímatónskáld og listamenn. Þau Una, Helga, Þórunn og Siggi hafa unnið með Björk Guðmundsdóttur, Jóhanni Jóhannssyni, Ensemble Modern og Atla Heimi Sveinssyni og eru leiðandi listamenn Kammersveitar Reykjavíkur og í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ludwig van Beethoven gegnir mikilvægu hlutverki en einnig hafa fjölmörg tónskáld skrifað verk sérstaklega fyrir kvartettinn. Á tónleikum hefur Strokkvartettinn Siggi meðal annars leikið fimm klukkustunda langan kvartett Morton Feldman, kvartetta Jóns Leifs auk kvartetta gömlu meistaranna.
Tónskáld sem kvartettinn hefur þegar frumflutt eða íslandsfrumflutt verk eftir eru Atli Heimir Sveinsson, Veronique Vaka, Daníel Bjarnason, María Huld Markan, Haukur Tómasson, Una Sveinbjarnardóttir, Halldór Smárason, Gunnar Andreas Kristinsson, Ásbjörg Jónsdóttir, Gunnar Karel, Arngerður María Árnadóttir, Finnur Karlsson, Þórunn Ósk Marinósdóttir, Haukur Þór Harðarsson, Mamíkó Dís Ragnarsdóttir, Páll Ragnar Pálsson, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Kjartan Hólm, Guðmundur Steinn Gunnarsson, Pétur Jónasson, Hilmar Örn Hilmarsson, Tinna Þorsteinsdóttir, Oliver Kentish, Hugi Guðmundsson, Bára Gísladóttir, Úlfar Ingi Haraldsson og Viktor Orri Árnason. Flest þessi tónskáld hafa skrifað verk sín sérstaklega fyrir Strokkvartettinn Sigga.
Af upptökum má nefna verk Halldórs Smárasonar á plötunni “Stara”, verk Gunnars Andreasar Kristinssonar á samnefndri plötu “Moonbow” fyrir Sono Luminus, verk Philip Glass með Víkingi Ólafssyni og verk Dustin O’Halloran fyrir Deutsche Grammophon. Strokkvartettinn lék einnig á plötum Bjarkar Guðmundsdóttur, Fossora og Ancestress.
Siggi hefur komið fram á ýmsum hátíðum, á Erkitíð, Tíbrá og Myrkum músikdögum, á Háskólatónleikum og hefur árvisst komið fram í Kammermúsikklúbbnum í Hörpu.
Fyrsta plata kvartettsins “South of the Circle” kom út hjá Sono Luminus útgáfunni 2019 og hlaut lofsamlega dóma. Siggi lék á fyrstu Tómamengis-tónleikunum í Mengi og var staðarlistahópur tónlistarhátíðinnar Sjö dagar sælir á Ísafirði 2020 þar sem IBM 1401, verk Jóhanns Jóhannssonar og Ernu Ómarsdóttur var flutt með þeim Ernu og Óbó. Á árinu 2020 frumflutti hópurinn 10 verk. Hópurinn fagnaði 10 ára starfsafmæli árið 2022 og gaf af því tilefni út heildarverk Atla Heimis Sveinssonar fyrir strengjakvartett. Strokkvartettinn Siggi hlaut árið 2018 Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins og platan Atli Heimir Complete String Quartets hlaut sömu verðlaun sem plata ársins 2023. Nýlega frumflutti kvartettinn verkin Contrasts eftir Úlfar Inga Haraldsson og Sjókort Strengjakvartett nr. 2 eftir Unu Sveinbjarnardóttur. Strokkvartettinn Siggi mun frumflytja verk Unu Vatnasvíta á Hverafugli ásamt nýju verki eftir Halldór Smárason.