Melchior

Melchior kemur fram á tónlistarhátíðinni Hverafugl sunnudaginn 28. júní kl. 20:00 í Leikfélaginu í Hveragerði.

Eftir ferðalag hátíðarinnar um ólíka tónlistarstíla, rými og listform bindur hin sögufræga kammerpopphljómsveit Melchior endahnút á Hverafugl með miklum tónlistarbræðingi.

Tónleikarnir kallast á við opnunartónleika hátíðarinnar, þar sem Hvergerðingurinn Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson er í broddi fylkingar. Með einstökum hljóðheimi sínum skapar Melchior lifandi og eftirminnilega lokastund á fyrstu Hverafugl hátíðinni.

Miðaverð:
Almennt miðaverð: 4.500 kr.
Nemar og öryrkjar: 3.000 kr.

Hljómsveitin Melchior, sem upphaflega átti að vera verkefni sumarið milli Hagaskóla og MR, hefur spilað, með hléum frá 1973 eða í rúma hálfa öld. Hljómsveitir verða ekki mikið eldri nema þær heiti Rolling Stones. 

Á fyrsta tímabili sveitarinnar sendi hún frá sér eina litla og tvær stórar hljómplötur, Silfurgrænt ilmvatn og Balapopp. Báðar, einkum sú fyrrnefnda, náðu allnokkurum vinsældum, ekki síst lagið Alan, sem gerði gott mót í óskalagaþáttum Ríkisútvarpsins. Tónlistin sem hljómsveitin sendi frá sér skilgreindu meðlimir sem heimilispopp. Og svo var það árið 1980 að gert var hlé á starfseminni, langt hlé. 

Hljómsveitin kom aftur saman árið 2006 og hljóðritaði í kjölfarið plötuna melchior. Þar varð lagið um Fiskisúpu Sigríðar í Fjöruhúsinu allvinsælt. Ári síðar var slegið í safndisk, melchior < 1980. Árið 2012 kom svo út diskurinn Matur fyrir tvo, sem innihélt m.a. lagið Spriklandi vor og 2019 kom svo út konseptverkið Hótel Borg þar sem sungið var um hið þjóðþekkta hótel í nútíð og fortíð.

Nú, í júní 2026 kynnir sveitin metnaðarfyllstu plötu sína (bæði vínyll og diskur) hingað til, Ljós í skóm. Af henni hefur þegar verið kynnt lagið Kúadelluslamm. Melchior er síður en svo af baki dottin, að vanda ráða fín lög og vandaðar útsetningar för. Lög eru sem fyrr samin og flutt af þeim Hilmari Oddssyni, Hróðmari Inga Sigurbjörnssyni og Karli Roth. 

Í gegnum tíðina hafa orðið nokkrar mannabreytingar í Melchior. Að þessu sinni leika Kjartan Guðnason á trommur, Óttar Sæmundsen á bassa og Margrét Kristjánsdóttir á fiðlu. Auk þeirra koma fram söngkonurnar Elín Jónína Bergljótardóttir, Svanlaug Jóhannsdóttir og gamla góða Melchior söngkonan Kristín Jóhannsdóttir.