Ljóðagjörningur
Laugardaginn 27. júní kl. 13:30 fer fram ljóðagjörningur spunninn út frá ljóðum Elísabetar Jökulsdóttur við steininn „Þetta líður hjá“ í flutningi Þórgunnar Önnu Örnólfsdóttur söngkonu og Bjargar Brjánsdóttur flautuleikara.
Björg og Þórgunnur stofnuðu til samstarfs árið 2024 og hafa síðan bæði haldið opinbera tónleika sem og komið fram við ýmis tilefni á Íslandi og í Danmörku, svo sem við opnun Bókmenntahátíðar í Reykjavík 2024. Dúóið leggur upp úr því að flytja nýjar tónsmíðar í bland við eldri tónverk og hefur þegar frumflutt þrjú verk ásamt því að vera með ýmislegt í bígerð, svo sem samstarf við tónskáldin Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur og Kolbein Bjarnason.
Ókeypis aðgangur