KIMI Ensemble & nemendur LHÍ
KIMI Ensemble kemur fram á tónlistarhátíðinni Hverafugl sunnudaginn 28. júní kl. 17:00 í Listasafni Árnesinga.
KIMI Ensemble er margrómaður nútímatónlistarhópur með aðsetur í Kaupmannahöfn. Hópinn skipa Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmóníkuleikari, Katerina Anagnostidou slagverksleikari og Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söngkona.
Á tónleikunum flytur KIMI Ensemble ný verk eftir tónsmíðanemendur Listaháskóla Íslands. Þar fá áheyrendur að kynnast ferskum röddum í íslenskri samtímatónlist í flutningi framúrskarandi tónlistarfólks.
Efnisskrá:
Sunna Gunnlaugsdóttir (1970): Myrkur (2026, frumflutningur)
Ingunn Bjarnadóttir (1905-72): Krakki í koti, Kvæðið um krumma og Svanir
Pranav Ranjit (2000): All for One (2026, frumflutningur)
Miðaverð:
Almennt miðaverð: 4.500 kr.
Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 3.000 kr.
KIMI ensemble samanstendur af Jónasi Ásgeiri Ásgeirssyni harmóníkuleikara, Katerinu Anagnostidou slagverksleikara og Þórgunni Önnu Örnólfsdóttur söngkonu. Tríóið einbeitir sér einkum að flutningi nýrra verka sem samin eru fyrir sérstæða hljóðfærasamsetningu hópsins, í bland við eigin útsetningar á þjóðlagatónlist frá heimalöndum sínum - Íslandi og Grikklandi. KIMI hefur komið víða fram bæði hérlendis og erlendis, og má þar nefna hátíðir og tónleikaraðir svo sem Feneyjartvíæringinn, Sumartónleika í Skálholti, Seiglu og NJORD Biennale. Hópurinn hefur tvívegis hlotið tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokknum sígild og samtímatónlist, fyrst fyrir tónleika ársins 2021 og síðar sem flytjandi ársins 2026. Þá var KIMI nýverið tilnefndur til ECHO Rising Stars framtaksins af hálfu tónlistarhússins Hörpu, sem er samstarfsverkefni helstu tónlistarhúsa Evrópu.
Fyrsta smáskífa hópsins kom út árið 2022 á vegum Dacapo Records - hljóðritun á verkinu Bittersweet eftir Nick Martin. Sama ár tók KIMI þátt í leikverkinu Livia’s Room eftir Lene Therese Teigen í Björgvin, þar sem þau fluttu tónlist eftir Þuríði Jónsdóttur. Verkið var nýverið flutt í Circolo Scandinavo í Róm og mun hljóðritun á tónlistinni koma út síðar á þessu ári. Meðal annarra þverfaglegra verkefna má nefna „gesamtkunstwerk“sænsku listakonunnar Lap-See Lam í Norræna skálanum á Feneyjartvíæringnum árið 2024, þar sem hópurinn flutti tónlist norska tónskáldsins Tze Yeung Ho. KIMI hefur unnið með fjölda íslenskra og erlendra tónskálda; meðal nýlegra verkefna má nefna samstarf við tónskáldin Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, Hauk Tómasson, Kolbein Bjarnason og Udi Perlman, og undirbýr tríóið um þessar mundir ný verk eftir Guðmund Stein Gunnarsson og japanska tónskáldið Aya Yoshida.
Sunna Gunnlaugs (1970)
Myrkur (2026)
Myrkur, hvar ert þú?
Söknuður er sár,
faðmaðu mig.
Birtan er beitt,
augu mín lang þreytt.
Fuglinn úti syngur.
Áreitið mig stingur.
Hvar er rökkrið?
Syng ég þér óð,
eins konar næturljóð.
Ég sé ekki Mána.
Ég sé ekki Hjúka og Bil,
systkinin.
Ég sé ekki stjörnurnar.
Ég sé ekki stjörnurnar glitra,
glitra skært.
Ég sé ekki stjörnurnar glitra, né falla.
En ég fell.
Myrkrið mitt,
breiddu yfir mig,
veit mér skjól.
Stephan G. Stephansson (1852-1927)
Ingunn Bjarnadóttir (1905-1972)
Krakki í koti
Það var fæddur krakki í koti,
kúrði sig í vögguskoti,
bláeygur með bros á munni
businn efni manns,
gestur sem að enginn unni
utan mamma hans.
Mánaljós um mjallir blakti,
mamma svaf en Ísland vakti.
Fóstran hans og vörn á vegi
vögguljóðið kvað.
Ef þú kannt það kvæði eigi
kveða skal ég það.
Kári Tryggvason (1905-1999)?
Ingunn Bjarnadóttir (1905-1972)
Kvæðið um krumma / svanir
Dökkum vængjum krummi klýfur
kafaldsbyl um vetrarnótt.
Allt í kring er auðn og myrkur,
allt í kring er dauðahljótt.
Dökkum vængjum krummi klýfur
kafaldsbyl um myrka nótt.
Léttir vængir loftið kljúfa,
leikur í fjöðrum sunnan blær,
innst í huga og hjarta streymir
heiða svana rómur skær,
heiða svana rómur skær.
Pranav Ranjit (f. 2000)
All for one (2026)
vōcēs circumsistunt
nautae in marī.
stēllae in caelō sunt,
sine terminī.
ventī et undās
cupiō audīre....
molliter dīmitte,
pulchrum est dormīre.
Ensk þýðing:
Voices gather around
Sailors in the sea –
There are stars in the sky
Without boundary.
I wish to hear
waves and winds....
Gently let it go,
It is beautiful to sleep.
Hér skrifar Pranav Ranjit um verk sitt sem frumflutt verður á tónleikunum:
“All for One” was written for KIMI Ensemble as part of the inaugural Hverafugl festival in Hveragerði, Iceland. The idea for the piece arose from the first composer-ensemble workshop in the percussion studio for the Iceland Symphony Orchestra. The performers discussed not only the possibilities of their own instruments but also the ways in which they could extend into the worlds of the other two, whether by producing similar sounds or by literally playing percussion instruments and singing. During these demonstrations, I quickly envisioned a work in three movements - each centered around one performer, with the other two not simply playing supporting roles but instead often wandering into the other’s domains both literally and figuratively.
This is my final work which will be performed while I am still living in Iceland, at least for the near future; the end of the third movement, which I composed first, has a distinctly Icelandic origin. That section, in which all three performers sing together, is a wordless paraphrase of the Requiem by Jón Leifs, a work which I had admired long before my studies in this country but which I now feel represents my impression of it better than any other. Alongside it, I introduce my own text in Classical Latin, a language which I once learned and have always appreciated, portraying dreamlike scenes in a similar manner to Leifs’ texts from Jónas Hallgrímsson and Icelandic folklore.
The title originates from the fundamental structure of the piece as well as from the words “all for one, one for all”, the motto of the protagonists in Alexandre Dumas’ The Three Musketeers - which, along with its sequels, I find to be one of the finest chronicles of human experience.