Jónas Sig & Pétur Nói : Alþýðan & orgelið

Jónas Sigurðsson, Pétur Nói Stefánsson og Halldór Smárason leiða saman hesta sína á tónlistarhátíðinni Hverafugl laugardaginn 27. júní kl. 11:00 í Hveragerðiskirkju.

Á tónleikunum flæðir tónlist alþýðuskálda frá Hveragerði saman við íslensk orgelverk og myndar eina heildstæða tónlistarupplifun. Hér mætast raddir fortíðar og samtíðar í fallegu rými Hveragerðiskirkju, þar sem staðbundin menning, ljóðræn stemning og íslensk tónlistarhefð fá að njóta sín.

Efnisskrá:

Jónas Sigurðsson (1974): 
‍ ‍ Þessi endalausi vegur endar vel
Milda hjartað

Ragnar Björnsson (1926-1998):
‍ ‍Himnarós, Himnarós, leið og ljós, sálmforleikur
Bergþóra Árnadóttir (1948-2007): 
‍ ‍ Verkamaðurinn
Lífsbókin

Jón Nordal (1926-2024):
‍ ‍Toccata
Ingunn Bjarnadóttir (1905-1972):
‍ ‍Amma raular í rökkrinu
Jónas Sigurðsson (1974):
‍ ‍ Núna
Íslenskt þjóðlag:
‍ ‍Víst ertu, Jesú, kóngur klár
Jónas Sigurðsson (1974):
‍ ‍Hafið er svart

Miðaverð:
Almennt miðaverð: 4.500 kr.
Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 3.000 kr.

Pétur Nói (f. 2003) hóf suzukipíanónám 6 ára gamall við Tónlistarskóla Árnesinga. Eftir stúdentspróf frá Menntaskóla í tónlist hóf hann nám við Listaháskóla Íslands og Tónskóla Þjóðkirkjunnar en þaðan lauk hann kantorsprófi vorið 2025 og einleikaraprófi ári síðar. Síðastliðin fjögur ár hefur orgelkennari Péturs Nóa verið Björn Steinar Sólbergsson.

Pétur Nói hefur starfað sem organisti frá tvítugsaldri en hann hefur einnig haldið orgeltónleika í fjölmörgum kirkjum landsins.

Jónas Sigurðsson er íslenskur söngvari, lagahöfundur og tónlistarmaður. Jónas Sigurðsson kom fyrst fram á sjónarsviðið með Sólstrandargæjunum. Eftir hlé frá tónlist og búsetu erlendis sneri hann aftur sem sólóisti með plötunni Þar sem malbikið svífur mun ég dansa, sem vakti athygli árið 2007. Síðan þá hefur hann gefið út ýmsar plötur, þ.m.t. Milda hjartað sem kom út árið 2018 og hlaut góða umfjöllun og viðurkenningar.

Halldór Smárason er tónskáld og píanóleikari sem hefur á síðustu árum haslað sér völl sem einn af eftirtektarverðum fulltrúum nýrrar kynslóðar íslenskra tónskálda. Verk hans hafa verið flutt víða í Evrópu og Bandaríkjunum á hátíðum á borð við Manifest, Musiikin aika, Nordic Music Days og Myrka músíkdaga, og hann hefur unnið með hópum á borð við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ensemble intercontemporain, Oslo Sinfonietta og Caput.

Tónlist hans hefur hlotið lof gagnrýnenda, meðal annars í Gramophone og AnEarful. Hann hefur hlotið starfslaun listamanna, Fulbright-styrk til náms við Manhattan School of Music og dvalarstyrk við Civitella Ranieri. Halldór lauk framhaldsprófi í píanóleik árið 2009 og nam tónsmíðar við Listaháskóla Íslands og Manhattan School of Music, auk þess að sækja tíma hjá Beat Furrer. Verk hans hafa í þrígang verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna, þar á meðal hljómplatan STARA (Sono Luminus, 2020).

Auk tónsmíða er hann virkur píanó- og hljómborðsleikari og situr í stjórn Tónskáldafélags Íslands.