Hljóðinnsetning
Laugardaginn 27. júní kl. 15:00 opnar hljóðinnsetning sem er samstarfsverkefni Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur og Kristofers Rodríguez Svönusonar. Innsetningin verður í Bananahúsi Garðyrkjuskólans á Reykjum.
Hljóðinnsetningin sem verður frumflutt á Hverafugli þann 27. júní í Bananahúsi Garðyrkjuskólans er samstarfsverkefni Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur og Kristofers Rodríguez Svönusonar. Í verkinu rannsaka þau hljóðheima sem tengjast hinum ýmsu trjátegundum sem fyrirfinnast í Bananahúsinu; það er að segja, þau umhverfishljóð (bæði dýra og fugla) og þá tónlist sem á rætur sínar að rekja til svipaðra slóða í heiminum. Útkoman er einskonar endurómur og samansafn þeirra hljóða og tóna sem forfeður trjánna í Bananahúsinu lifðu í og hrærðust, líkt og minning eða draumur.
Innsetningin verður opin laugardaginn 27. júní frá 15:00-20:00 og sunnudaginn 28. júní frá 10:00-20:00.
Ókeypis aðgangur.
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir (1990) lauk B.A. gráðu í tónsmíðum frá LHÍ vorið 2016 þar sem kennarar hennar voru Hróðmar I. Sigurbjörnsson og Anna Þorvaldsdóttir. Ingibjörg hefur síðan sett svip sinn á íslenskt tónlistarlíf og átt gott samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput, Kammersveit Reykjavíkur, Nordic Affect og fleiri. Ingibjörg var valin Bjartasta vonin í flokki Sígildrar og samtímatónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum 2020 og árin 2023 og 2026 voru verk hennar tilnefnd þar í sama flokki. Ingibjörg hefur gert tvær hljómplötur í fullri lengd: Konan í speglinum með dúóinu Ingibjörgum (2023) og Hulduhljóð með listhópnum Hlökk (2019) sem fékk Kraumsverðlaunin ásamt tilnefningu til plötu ársins í Opnum flokki á Íslensku tónlistar-verðlaununum. Ingibjörg vinnur nú með Caput að gerð plötu með völdum hljómsveitarverkum hennar sem kemur út hjá Sono Luminus á næsta ári.
Kristofer Rodríguez Svönuson (1988) er slagverksleikari og tónskáld af íslenskum og kólumbískum uppruna. Hann útskrifaðist úr FÍH árið 2014 og hefur síðan stundað slagverksnám á Kúbu, í Kólumbíu og á Spáni. Kristofer hefur starfað með mörgu af helsta tónlistarfólki Íslands í jazz, heimstónlist og poppi.
Árið 2019 gaf hann út sína fyrstu plötu, Primo, sem var tilnefnd sem plata ársins í opnum flokki á Íslensku tónlistarverðlaununum. Hlaut hún mikið lof bæði á Íslandi og erlendis og var sérstaklega fjallað um hana í þáttunum Music That Matters og Song of the Day á Bandarísku útvarpsstöðinni KEXP.
Árið 2024 var Kristofer valinn bæjarlistamaður Kópavogs og sama ár stofnaði hann nýtt tónlistarverkefni sitt Watachico. Kristofer vinnur nú að upptökum á fyrstu plötu Watachico en fyrsta útgefna lag plötunnar var valið lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2026.