Heiða Árnadóttir : áttir

Heiða Árnadóttir söngkona kemur fram á tónlistarhátíðinni Hverafugl laugardaginn 27. júní kl. 22:00 í Hveragerðiskirkju.

Á tónleikunum flytur Heiða hljóðlistaverkið áttir eftir Lilju Maríu Ásmundsdóttur. Verkið sameinar rödd, rými og rafhljóð og skapar einstaka tónlistarupplifun í fallegu umhverfi Hveragerðiskirkju. Lilja María mun sjálf stýra rafhljóðum á tónleikunum.

Miðaverð:
Almennt miðaverð: 4.500 kr.
Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 3.000 kr.

áttir eftir Lilju Maríu Ásmundsdóttur er tónverk fyrir rödd, rafhljóð og hljóðskúlptúra, samið sérstaklega fyrir Heiðu Árnadóttur. Verkið var upphaflega flutt á vorjafndægri 2026, þegar dagur og nótt eru nánast jafn löng. Sá tími árs markar jafnvægi og umbreytingu sem endurspeglast í tónmáli og efnistökum verksins.

Verkið er byggt á grafískri nótnaskrift þar sem ljósmyndir af sömu plöntunni á mismunandi tímum árs eru notaður sem grunnur fyrir grafísku nóturnar. Upphafskafli verksins er byggður á ljósmyndum af plöntunni sem teknar voru í febrúar, sem eins konar inngangur inn í vorjafndægrið. Í öðrum kafla verksins eru notaðar ljósmyndir sem teknar voru í kringum vorjafndægur. Lokakafli verksins er síðan byggður á ljósmyndum sem teknar voru að sumri til, um svipað leyti og hátíðin Hverafugl er haldin.

Innblástur verksins kemur frá himingeiminum og veðráttu, en einnig frá hugmyndum um sýnileika og ósýnileika, hvernig hið efnislega og hið óáþreifanlega birtist í samspili. Lilja hannaði hljóðskúlptúra úr mismunandi efnivið sem staðsettir verða á mismunandi stöðum í Hveragerðiskirkju. Þessir skúlptúrar verða virkjaðir af Heiðu á ákveðnum stöðum í verkinu og skapa þannig lifandi samtal milli raddar, rýmis og efnis.

Heiða Árnadóttir hefur á ferli sínum lagt ríka áherslu á flutning samtímatónlistar, sem og þjóðlaga-, djass-, tilrauna- og ljóðatónlistar. Heiða lauk mastersnámi úr Tónlistarháskólanum í Haag í Hollandi árið 2004. Ásamt fjölda tónleika á Íslandi, þar sem hún hefur meðal annars frumflutt verk með Ensemble Adapter og Caput, hefur Heiða einnig komið fram í Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Indlandi, Svíþjóð og Danmörku.

Hún hefur flutt verk á Norrænum músíkdögum, Myrkum músíkdögum, Iceland Airwaves, Sumartónleikum í Skálholti, Óperudögum, Jazzhátíð Reykjavíkur og ýmsum hátíðum erlendis eins og á hátíðartónleikum á tónlistarhátíðinni WOMEX í Kaupmannahöfn.

Heiða var tilnefnd sem söngkona ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum í flokki klassískrar tónlistar fyrir árin 2020 og 2023. Einnig vann hún Grímuverðlaunin sem söngvari ársins 2024 fyrir ljóðsöguna Mörsugur.

Heiða er lagahöfundur, textaskáld og söngkona í hljómsveitinni Mógil sem hafa gefið út 4 plötur. Hún var staðarlistamaður Myrkra músíkdaga 2020-2023 þar sem hún frumflutti fjölda verka eftir íslensk tónskáld.

Heiða gaf út plötuna “Tunglið og ég” 2023 ásamt píanóleikaranum Gunnari Gunnarssyni. Þar flytja þau lög tónskáldsins Michel Legrand við íslenska texta Árna Ísakssonar og Braga Valdimars Skúlasonar.

Í gegnum listrænar vinnuaðferðir sı́nar skoðar Lilja Marı́a Ásmundsdóttir samsköpun og tengsl milli listgreina. Hún býr til innsetningar, hljóðskúlptúra og hljóð- og sjónræn verk með þvı́ að vinna með skúlptúrı́sk einkenni hljóðs og efnis. Verkin eru hönnuð út frá þvı́ að skapa ferli sem varpa ljósi á hvernig hugmyndir verða til út frá þvı́ að vinna með mismunandi efnivið, á milli einstaklinga og ı́ samhengi við umhverfi sitt.

Lilja María vinnur oft með hljóðskúlptúra ı́ bland við hljóðfæri ı́ verkum sı́num. Þar má t.d. nefna hljóð- og ljósskúlptúrinn Huldu sem var tilnefndur til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Verk hennar hafa m.a. verið flutt á Myrkum músı́kdögum, Huddersfield Contemporary Music Festival, Donaueschinger Musiktage og eavesdropping.

Lilja Marı́a lauk doktorsnámi ı́ tónsmı́ðum við City, University of London árið 2024. Hún lauk meistaragráðu ı́ tónsmı́ðum frá sama skóla og bakkalársgráðu ı́ pı́anóleik frá Listaháskóla Íslands.